Pistill

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir

Ég hef aldrei kosið Framsókn

Þótt ég eigi rætur að rekja til Skaga­fjarðar hef ég aldrei kosið Framsóknar­flokkinn. Miðað við siglingu flokksins undan­farið hlaut að koma að því að Framsókn tæki borgar­stjóra­stólinn. Allt getur gerst í pólitík og lífinu sjálfu. Og það hlýtur að koma að því einn daginn að ég panti tíma hjá kven­sjúkdóma­lækni. Satt best að segja hef ég ekki farið í mörg ár. Ekki af ótta við að fá slæmar fréttir um að vera með krabba­mein, heldur óttanum við að komast ekki upp á skoðunar­bekkinn, í hjólastól.
Pistill

Kristján Kristjánsson

Öld „sterku leið­toganna“: Hugleiðingar um nýja bók

„Hann er yfir­gengilega upptekinn af sjálfum sér, telur sig hafinn yfir lög og reglur, skilgreinir sig sem „mann fólksins“ og kyndir undir þjóðernis­hyggju, sem var megin­undirrótin að Brexit. Bæta mætti því við að Boris er að mestu siðblindur gagnvart sann­leikanum og Keynes-sinni í ríkis­fjármálum“ segir um Boris Johnsons forsætis­ráðherra Breta í nýrri bók.
Pistill

Gunnar Hersveinn

Góðvild andspænis ógnar­jafnvægi

Betri veröld hvílir á herðum allra, en þó ekki á herðum valda­kerfis sem er þjakað af stríðs­kenndum úrræðum. Nú hafa draugar risið upp því ógn steðjar að mannkyni og upp vakna kenningar um að í innsta kjarna mann­eskj­unnar sé illsku, sjálfs­elsku og eyði­leggingar­hvöt að finna. Óvætti sem aðeins ógn kjarnorku­sprengjunnar geti haldið í skefjum. Nauðsynlegt er að kveða þessa drauga niður.

Mest lesið undanfarið ár