Pistill

Jón Ormur Halldórsson

Hvers vegna eru öll þessi stríð í Afríku?

Viðvarandi ófriður ríkir í nær tuttugu löndum Afríku. Milljónir hafa dáið þar í stríðum það sem af er öldinni. Enginn veit þó hvað margar. Í fyrra féllu fleiri í Tígrayhéraði Eþíópíu en í stríðinu í Úkraínu. Stríðin vekja yfirleitt ekki mikla athygli utan álfunnar. Það mun þó líklega breytast. Áhyggjur af síauknum straumi flótta­manna frá hálf­hrundum en um leið sífellt mannfleiri ríkjum Afríku munu sennilega þröngva stríðum álfunnar inn í vitund Evrópu­manna.

Mest lesið undanfarið ár