PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Yfirburða­staða Ólafs Ragnars í kviku landslagi - Barátta sem er langt í frá lokið

Könnun MMR, sem sýnir Ólaf Ragnar Grímsson með tæplega 23 prósentu­stiga forskot á Andra Snæ Magnason í kosninga­baráttunni fyrir embætti forseta Íslands, sýnir glögglega hversu áhrifa­mikil ákvörðun það var hjá Ólafi Ragnari að bjóða sig fram á nýjan leik, 20 árum eftir að hann varð forseti. Sem sitjandi forseti er hann með yfirburða­stöðu og algjört forskot á keppinauta, ekki síst...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ekki víst að það dugi að vona það besta

Hjól efnahags­lífsins snúast hratt þessa dagana. Ásdís Kristjáns­dóttir, hjá efnahags­sviði Samtaka atvinnu­lífsins, sagði í viðtali við Björn Bjarnason á sjónvarps­stöðinni ÍNN á dögunum, að hún hefði sjaldan eða aldrei séð stöðuna með jafn jákvæðum hagvísum og þessi misserin. Atvinnu­leysi mældist 3,8 prósent, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag, hagvaxtar­horfur þykja góðar, eignaverð, bæði á verðbréfa­markaði og á fasteigna­markaði,...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Krefjandi hagstjórn framundan

Þrátt fyrir mikla ólgu á sviði stjórn­málanna og vantraust á stjórn­málamönnum, þá er staða efnahags­mála í landinu góð um þessar mundir. Raunar er staðan þannig, nú þegar loka­hnykkurinn í áætlun stjórn­valda um losun fjármagns­hafta er framundan, að flestir hagvísar vísa í rétta átt. Helsta hættan er ofþensla, segja Seðla­banki Íslands og Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn. Nú þarf halda vel á spöðunum í hagstjórn­inni....
Pistill

Kolbeinn Óttarsson Proppé

Þegar Framsókn gaf Alcoa 120 milljarða

Hvað gerir pistla­höfundur þegar yfir hann streyma tilefni til beittrar samfélags­rýni, uppljóstr­anir á uppljóstanir ofan sýna að áhrifa­menn í stjórn­málum földu peningana sína svo vel í skatta­skjólum að þeir muna ekki einu sinni eftir því - en muna þó glöggt að af öllu var samvisku­samlega greitt - og meira að segja forsetinn segir ekki satt við erlenda frétta­menn um tengsl...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Dómgreindar­brestur og að láta gögnin tala

Afhjúpandi umfjöllun um Panama­skjölin svonefndu heldur áfram að gera mikið gagn fyrir samfélagið, en í gær var Kastljós RÚV með hluta gagnanna til umfjöllunar. Það hefur komið í ljós á þessum tímum að RÚV gegnir mikilvægu hlutverki, og það skiptir máli að þar sé vel haldið um þræði án nokkurs pólitísks þrýstings. Eiga blaðamenn RÚV hrós skilið fyrir góða vinnu....
Pistill

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Verður læknum á einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum bannað að greiða sér út arð?

Hvernig passar hugmyndin um arðgreiðslu­bann út úr einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum við hugmyndina um aukinn einka­rekstur í heil­brigðs­kerfinu? Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis­ráðherra hefur sett fram róttæka hugmynd um að banna arðgreiðslur en til saman­burðar er bara einn flokkur í Svíþjóð sem vill ganga svo langt.
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Heildar­myndin verður að koma fram

Rík­is­skatt­stjóri hefur tekið 178 mál ein­stak­linga til sér­stakrar skoð­un­ar, og kraf­ist skýr­inga, vegna mis­ræmis milli fram­tala og skatta­skjóls­gagna sem skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypt­i. Skúli Eggert Þórðarson hefur staðfest þetta. Þetta er merkilegt, og sýnir vel hversu mikilvægt það var, að fá gögnin og skoða þau. Það var líka mikilvægt að sá sem komst yfir gögnin og kom þeim til skatta­yfirvalda hafi gert...

Mest lesið undanfarið ár