PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ekki eftir neinu að bíða

Davíð Oddsson segir, í samtali við Spegilinn, að eftir að hafa lesið Al Thani dóminn finnist sér líklegra en hitt að pottur hafi verið brotinn í kaupunum á Búnaðar­bankanum. Eins og komið hefur fram, hefur Umboðs­maður Alþingis undir höndum nýjar upplýsingar um að þýski bankinn sem átti að vera kjölfestu­fjárfestir í bankanum hafi hugsanlega ekki verið raun­verulegur fjár­festir. „Ég er...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hefur Alþingi vilja til að upplýsa málið?

Það var merkilegt að sjá það í bréfi Tryggva Gunnars­sonar, umboðs­manns Alþingis, að hann hefði nú undir höndum nýjar upplýsingar um aðkomu Hauck & Aufhäuser að kaupum S-hópsins á Búnaðar­bankanum árið 2003. Hann segir jafnframt að Alþingi eigi að rannsaka málið, ef það er vilji til þess að komast til botns í málinu. Tryggvi hefur sýnt það í sínum störfum...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Svona gerist þegar verðbólgu­draugnum er haldið í skefjum

Tölur Hagstofu Íslands frá því í morgun, sem sýna þróun kaup­máttar launa, benda eindregið til þess að mikill þróttur sé nú í íslensku efnahags­lífi. Kaup­máttur launa hefur aukist um 11,6 prósent, að meðaltali, á síðustu tólf mánuðum. Það er mikil aukning á skömmum tíma, og greinilegt að miklar launa­hækkanir hafa skilað sér í veskið hjá lands­mönnum. Ennþá hefur lítið sem...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Akademískt frelsi er grund­völlur fræði­mennskunnar

Bjarni Már Magnússon, lektor við Háskólann í Reykjavík, þurfti að þola hótanir frá Tómasi H. Heiðar, forstöðu­manni Hafréttar­stofnunar Íslands, og hvatti Tómas Bjarna Má til að endur­skoða erindi á alþjóðlegri ráðstefnu þar sem hann teldi það ganga gegn hagsmunum Íslands. RÚV greindi frá þessu í gær. Stjórn Hafréttar­stofnunar sagði samskiptin réttilega óheppileg. Það verður að teljast vægt til orða tekið...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

InDefence: Almenningur á að vera í forgangi

„Afnáms­ferlið virðist hannað til að greiða götu kröfuhafa og hámarka endur­heimtur þeirra, almenningur, atvinnulíf og lífeyris­sjóðir reka lestina og þola umtals­verða rýrnun á verðgildi krónunnnar.“ Þetta segir Sveinn Valfells, eðlis- og hagfræðingur, og einn þeirra sem hefur staðið í forystu­sveit InDefence hópsins. InDefence hópurinn segir í umsögn sinni um hafta­frumvarpið svonefnda, sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi, að forgangur...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Stórkost­legur árangur Hrafnhildar

Það er óhætt að segja að íslenskt sundfólk hafi staðið sig frábærlega á EM í 50 metra laug í London. Hrafnhildur Lúthers­dóttir vann í gær til brons­verðlauna í 200 metra bringu­sundi. Hrafnhildur bætti bronsinu í verðlauna­safn sitt, en hún vann til silfur­verðlauna í 100 m bringu­sundi á EM í fyrra­kvöld. Sannarlega stórkost­legur árangur hjá Hrafnhildi, sem stefnir að sínu bestu...
Pistill

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Hlutirnir sem við ræðum þegar við tölum um Davíð Oddsson

Davíð Oddsson er eini forseta­fram­bjóðandinn sem er sannarlega umdeildur eftir áratuga­langa aðkomu að stjórnmála­lífinu á Íslandi sem borgar­stjóri, þingmaður, seðla­bankastjóri og ritstjóri. Hefur þetta einhverjar afleiðingar fyrir umræðurnar um forseta­fram­bjóðandann Davíð Oddsson? Á að tala með öðruvísi hætti um fortíð umdeildra stjórn­málamanna en annarra fram­bjóðenda?
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Með markmiðið um betri heim að vopni

Dr. Ngozi Okonjo-Iweala starfar nú sem aðal­ráðgjafi fjármála­fyrir­tækisins Lazard. Hún var á árum áður fjármála­ráðherra Nígeríu og framkvæmda­stjóri hjá Alþjóða­bankanum (World Bank). Ferill hennar er stór­merkilegur, og er hún álitin með allra áhrifamestu konum heimsins. Fortune nefndi hana meðal 50 áhrifamestu konum heimsins, og Time nefndi hana sem eina af 100 áhrifamestu einstak­lingum heimsins. Svo eitthvað sé nefnt. Það sem...

Mest lesið undanfarið ár