PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ábyrgðar­hluti að gera ekkert

Skelfilegt fjölda­morð á 50 einstak­lingum í Orlando, sem voru að njóta lífsins á skemmti­staðnum Pulse, þar sem hinsegin fólk var oft meðal gesta, vekur óhug sem von er. Í Banda­ríkjunum hefur umræðan fljótt farið í kunnuglegt far, þar sem sumir stjórn­málamenn reyna að nota atburðinn til að réttlæta stefnu sína í viðkvæmum mála­flokkum, eins og þeim sem snýr að byssu­löggjöfinni...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Óhætt að fagna nýju fangelsi

Nýtt fangelsi á Hólms­heiði hefur formlega verið tekið í notkun, en ríflega þrjú ár eru liðin frá fyrstu skóflu­stungu. Heildar­kostnaður við verkið nam um þremur milljörðum króna. Fangelsið er tæknilega fullkomið gæslu­varðhalds- og móttöku­fangelsi með sérstakri deild fyrir kvenfanga. Alls eru 56 fanga­klefar í fangelsinu. Óhætt er að fagna þessum tímamótum, en ástandið í fangelsis­málum landsins hefur verið skammarlegt fyrir...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Fordóma­fullur kynþátta­hatari valinn til forystu - Með ólíkindum

„Mér finnst ótrúlegt, og ég segi það í fullri einlægni, að Repúblikana­flokkurinn ætli árið 2016 að bjóða fram mann sem hefur mismunun og fordóma að hornsteinum í baráttu sinni.“ Þetta sagði Bernie Sanders eftir fund með Barack Obama Bandaríkja­forseta í gær. Hann var að sjálfsögðu að tala um Donald Trump, sem verður að öllum líkindum forseta­efni Repúblikana, í kosningunum í...
Kjaftæði

Hrafn Jónsson

Stór pabbi

Guðni Th. Jóhannesson verður líklega 6. forseti lýðveldisins. Hann er svo öruggur með kosningarnar að hann er nú þegar byrjaður að ferja yfirgrips­mikið safn sitt af köflóttum stutt­erma­skyrtum, Casio-tölvuúrum og ásmelltum háls­bindum til Bessa­staða. Svo þarf auðvitað að finna út úr því hvar eigi að koma þessum óendanlega hafsjó barna fyrir. Síðasti naglinn í líkkistu þessara kosninga var líklega rekinn...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Vonandi verða næstu leikir hugsaðir með sátt í huga

Alþingi samþykkti í gærkvöldi lög á aðgerðir flug­umferðar­stjóra með 32 atkvæðum gegn 13. Samkvæmt þeim hafa viðsemjendur frest til 24. júní til að semja. Takist það ekki verður skipaður þriggja manna gerðar­dómur til að úrskurða um laun flug­umferðar­stjóra. Ástæður laga­setningarinnar eru í fyrsta lagi að ríkinu er ómögulegt að sinna lögbundnum skyldum sínum um örugga flug­umferðar­þjónustu og í öðru lagi...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ísland þarf mikið á útlendingum að halda

Ásmundur Frið­riks­son og Brynjar Níels­son, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sátu hjá þegar ný útlend­inga­lög voru sam­þykkt á Alþingi í síð­ustu viku. Þeir voru einu þing­menn­irnir sem ekki greiddu atkvæði með nýju lög­un­um, sem ann­ars voru sam­þykkt í þverpóli­tískri sam­stöð­u. Brynjar sagði við atkvæða­greiðslu í þing­inu að það væri alveg aug­ljóst að í frum­varp­inu væri margt „mjög gott, sér­stak­lega sem snýr að rétt­indum...
Pistill

Ásdís Ólafsdóttir

Fúlir og framtíðin

Það er algjör sturlun að fylgjast með stokk­hólms­heilkenninu sem á sér stað um þessar mundir. Fyrrum forsætis­ráðherra er sann­færður um að alheims­pressan hafi svo mikla óbeit á Framsóknar­flokknum á Íslandi að hún hefji alþjóðlegt samstarf til þess eins að leiða hann í gildru – allt til þess að skaða bænda­flokk á lítilli eyju í Norður-Atlantshafi. Og flokkurinn hlustar, kinkar kolli...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Háskóla­starfið sem kosningamál

Fimm ára fjármála­áætlun stjórn­valda gerir ekki ráð fyrir að háskóla­starf í landinu eflist, segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. Hann telur að fjár­skortur geti grafið enn meira undan háskóla­starfi, með slæmum afleiðingum. Fyrstu viðbrögð séu væntanlega að fækka nemendum og fella niður ákveðnar greinar sem í boði hafa verið til þessa. Þetta eru slæm tíðindi, en koma ekki á...

Mest lesið undanfarið ár