PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Afleiðingar Brexit einungis slæmar fyrir Ísland enn sem komið er

Óhætt er að segja að mikil ringul­reið sé nú í breskum stjórn­málum, eftir Brexit-atkvæða­greiðsluna þar sem meirihluti Bretla kaus með því að Bretland myndi yfirgefa Evrópu­sambandið. Ekki liggur fyrir enn hvernig verður að því staðið, og deildar meiningar eru um hver næstu skref eiga að vera. Frá forystu­fólki stærstu Evrópu­sambands­ríkjanna, þar á meðal Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands, hafa komið skýr...
Kjaftæði

Bryndís Eva Ásmundsdóttir

Best á ný

Sumarið ´16 hlýtur að verða yrkisefni ófárra kassagít­arstrúbba um ókomna tíð. Það er eitthvað svo yfirmáta íslenskt og ævintýralegt við það, á pari við einn stóran brekkusleik undir stjörnu­björtum himni með Ferðalok í ótal misflúruðum útgáfum í bakgrunni. Allir vilja heimsækja okkur, allir halda með okkur, sigur­brautin er bein og björt. Við erum sætasta stelpan á skóla­ballinu, þessi sem er...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Óþolandi framkoma

Stórkostleg framganga íslenska lands­liðsins á EM í Frakk­landi verður lengi í minnum höfð, og er þegar skrásett á spjöld íþrótta­sögunnar. Þó líklega verði ekki stór kafli um miðasölu á leiki Íslands, á þeim spjöldum, þá er samt sem áður leiðinlegt að sjá fregnir af miðasölu­hneyksli í tengslum við leik Íslands og Frakka. Tugir einstak­lega fengu ekki miða, sem þeir höfðu...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Árangur sem lyfti þjóðar­sálinni - Tökum vel á móti þeim!

Stórkost­legur árangur íslenska lands­liðsins í fótbolta hefur lyft þjóðar­sálinni og glatt Íslendinga um allan heim. Það er ekki svo langt síðan það var óhugsandi að íslenska karla­landsliðið gæti komist í úrslita­keppni stórmóts, og hvað þá alla leið í 8 liða úrslit. Með árangrinum hefur íslenskt íþróttalíf náð að feta nýjar brautir, og sýnt fram á það, að lítil þjóð getur...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Helga Hrafn langar ekkert að verða ráðherra

Stærstu pólitísku tíðindi gærdagsins voru þau að Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, ætlar ekki að bjóða sig fram í komandi þing­kosningum. Þess í stað ætlar hann sér að einbeita sér að innra starfi flokksins á næsta kjör­tímabili og byggja brú milli hans og þing­flokks Pírata, sem séu mjög ólíkar stofnanir. Helgi Hrafn ætlar svo að bjóða sig aftur fram árið...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ófyrirséðir hlutir geta haft mikil áhrif í ferða­þjónustunni

Vöxturinn í ferða­þjónustunni heldur áfram. Nýjar tölur frá Hagstofunni, sem birtar voru í gær, sýna að gistinóttum erlendra ferða­manna fjölgaði um 29 prósent í maí, miðað við sama mánuð í fyrra. Þessar tölur eru nokkurn veginn í takt við flestar spár sérfræðinga, um vöxt ferða­þjónustunnar á þessu ári. En engu að síður eru þær stór­merkilegar. Nýr veruleiki í efnahags­lífinu, sem...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Forðumst að draga flótta­menn inn í hryðjuverka­umræðu

Þó fótboltinn eigi hug lands­manna, þessa dagana, þá er öllum hollt að hugsa til þeirra sem eiga um sárt að binda. Skelfi­legir atburðir í Tyrklandi, þar sem þrjár sjálfsmorðs­árásir á Ataturk flug­vellinum í Istanbúl bönuðu 42 og særðu á þriðja hundrað, eru til marks um eldfimt ástand í landinu. Síendurtekin hryðju­verk, á tiltölu­lega skömmum tíma, hafa skapað ótta í þessu...

Mest lesið undanfarið ár