PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi

Veður verður eins og best verður á kosið þegar Reykja­vík­ur­m­araþonið verður flautað af stað í dag. Spáð er hálf­skýjuðu, hæg­um vindi og hita á bil­inu 13 til 15 stig, samkvæmt spá Veður­stofu Íslands. Al­mennt verður veður mjög fínt um land allt í dag og inn í næstu viku, fyr­ir utan þoku­loft allra nyrst og með Aust­ur­strönd lands­ins. Í kvöld, þegar...
Kjaftæði

Bryndís Eva Ásmundsdóttir

Reddið þessu

Í fyrra­sumar fórum við unnusti minn til Kólumbíu. Umræddur unnusti er afskaplega afslöppuð týpa og í raun og sanni hold­gerv­ingur hins alíslenska „þetta-reddast“ hugsunar­háttar, guð blessi hann. Yfir mig ástfangin, sönglandi hakuna matata, lagði ég því upp í ögn óskipulagt ferðalag til einkar hættulegs lands því skipulag skemmir flippið og lífið er best ef það bara gerist. Til að byrja...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Innflytj­endur skipta Ísland miklu máli og leggja mikið af mörkum

Erlendir rík­is­borg­arar eru nú yfir tíu pró­sent þeirra sem greiða skatta á Íslandi. Rúm­lega annar hver nýr skatt­greið­andi hér­lendis á síð­ustu árum hefur komið erlendis frá og á árinu 2015 einu saman voru 74,4 pró­sent allra nýrra skatt­greið­enda erlendir rík­is­borg­ar­ar. Það þýðir að þrír af hverjum fjórum sem bætt­ist við skatt­grunn­skrá lands­ins í fyrra voru erlendir rík­is­borg­arar en einn af...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvað gerir peninga­stefnu­nefndin núna?

Fróðlegt verður að sjá hvernig peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákveður vexti næst, á vaxta­ákvörðunar­degi, 24. ágúst næst­komandi. Raun­vextir eru nú tæplega fimm prósent. Megin­vextir eru 5,75 prósent en verðbólga mælist 1,1 prósent. Raun­vextir eru hvergi svo háir í heiminum, um þessar mundir. Oft hefur umræðan verið um það, hversu mikil verð­bólgan sé, og þar af leiðandi stýri­vextir. En það dugar ekki...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Ræða þarf smáatriðin sem eru líka stór atriði

Greinilegt er að stjórnar­flokkarnir, Sjálfstæðis­flokkur og Framsóknar­flokkur, vilja reyna að ná betur til ungs fólks með því að einblína á fyrstu íbúðar­kaupendur í sérstökum aðgerðum sem kynntar voru í gær. Þær byggja á því að veita fólki heimild til að nýta séreigna­sparnað, gegn skatta­afslætti, til að greiða inn á fasteign. Þetta er ekki nýtt af nálinni, og felur ekki í...

Mest lesið undanfarið ár