Pistill

Freyja Haraldsdóttir

Forréttindi og fordómar eru stað­reyndir

„Ég er svo fegin þegar ég sé að fólk verður reitt, þegar fólk tekur hluti alvarlega,“ segir Freyja Haralds­dóttir, um forréttindi og fordóma. Í kjölfar ummæla sem fjölmiðla­maðurinn Sindri Sindrason lét falla í frétta­tíma Stöðvar 2 um að hann gæti ekki verið í forréttinda­stöðu því hann tilheyrði mörgum minnihluta­hópum hefur mikil umræða skapast í kringum forréttindi. Freyja er talskona femínísku fötlunar­hreyfingarinnar Tabú og segir frá því hvernig hún telur að margir séu að misskilja þetta hugtak, og hversu mikilvægt hún telur að jaðar­settir hópar sýni að þeim stendur ekki á sama þegar reynslu­heimur þeirra er rengdur.

Mest lesið undanfarið ár