„Ógeðslegt í raun og veru að horfa upp á þetta”

Hinum kól­umbíska Oscar Andres Florez Bocanegra hefur verið synjað um alþjóð­lega vernd á Íslandi. Fjöldi mót­mæl­enda kom saman niður á Aust­ur­velli til þess að mót­mæla úrskurð­inum. Skila­boðin voru skýr: „Oscar á heima hér!"

„Ógeðslegt í raun og veru að horfa upp á þetta”
Fjöl­mennt á mót­mælum gegn brott­vísun Oscars Mót­mæl­endur sýna Oscari stuðn­ing Mynd: Golli

Fjöldi mót­mæl­enda voru saman komnir á Aust­ur­velli kl. 15 í dag til þess að mót­mæla úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála í máli Oscars Andres Florez Bocanegra, 17 ára drengs frá Kólumbíu. Búið var að girða Alþing­is­húsið af og lög­reglan var með við­búnað á svæð­inu. Mótmælin fóru frið­sam­lega fram, haldnar voru ræður og mót­mæl­endur, á öllum aldri, létu í sér heyra með hinum ýmsu slag­orðum.

Fjöldi mót­mæla brott­vísun OscarsMargt var um mann­inn á Aust­ur­velli

„Mjög óréttlátt að það sé verið að senda hann úr landi”

Augljóst var að fólki mis­bauð nið­ur­staða úrskurð­ar­ins. „Mér ofbýður fram­koma við þennan dreng sem er með fjöl­skyldu sem vill sinna honum og fóst­urpabbi hans hefur farið út að sækja hann meira að segja,” sagði Anna Jóna Jóhanns­dóttir, og bætti við: „Ég trúi ekki öðru en að við höfum pláss fyrir einn svona dreng hjá einni fjöl­skyldu. Nóg er af vanda­málum í heim­inum og við bætum ekki einu barni við.” 

„Mannslíf eru í húfi og í þetta skiptið er það líf barns sem er í húfi.”
Haf­steinn Guð­munds­son
Mót­mæl­andi

„Mér finnst þetta mjög órétt­látt að það sé verið að senda hann úr landi. Þetta er bara ógeðs­legt í raun og veru að horfa upp á þetta og maður fær illt í hjartað að sjá þetta,” sagði Haf­steinn Guð­munds­son.

Mótmæli brott­vís­unar OscarsMót­mæl­endur mættu með skýr skila­boð

„Oscar er búinn að koma sér fyrir hér, á fjöl­skyldu hér orðið, þannig þetta er algjör­lega út í hött,” sagði Einar Ólafsson sem mætti á mót­mælin.

„Kom okkur ofsalega á óvart að þetta yrði niðurstaða kærunefndar”

Lögmaður Oscars, Helga Vala Helga­dóttir, var við­stödd mót­mælin og á meðal ræðu­manna. Spurð út í nið­ur­stöðu úrskurð­ar­ins sagði Helga Vala: „Mér finnst þetta bara efn­is­lega rangt. Ég get ekki séð af hverju er ekki hægt að skjóta skjóls­húsi yfir hann, það liggur alveg fyrir að hans félags­legu aðstæður í heima­land­inu eru gríð­ar­lega flóknar. Það liggur líka fyrir að barna­vernd­ar­yf­ir­völd á Íslandi brutu á rétt­indum hans á sínum tíma þegar hann var hérna.” En þá vísar Helga Vala til þess þegar Oscar var sendur til Bógóta í októ­ber síð­ast­liðin með föður sínum og var í kjöl­farið skil­inn eftir á flug­vell­inum þar. 

Mótmæli brott­vís­unar OscarsOscar á heima hér

Útlend­inga­stofnun synj­aði Oscari, föður hans og systrum um alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum og var þeim jafn­framt brott­vísað frá land­inu 15. októ­ber í fyrra. Oscar end­aði í kjöl­farið á göt­unni í Bógóta en Svavar Jóhanns­son, fóst­ur­faðir hans, sótti hann til Kólumbíu um miðjan nóv­em­ber. 

Oscar lagði fram end­ur­tekna umsókn um alþjóð­lega vernd 10. febr­úar síð­ast­liðin eftir að Útlend­inga­stofnun hafði synjað honum, föður hans og systrum í októ­ber í fyrra. Nú lagði hann fram umsókn á þeim grund­velli að hann væri fylgd­ar­laust barn en Útlend­inga­stofnun vís­aði umsókn­inni frá þar sem ástæðan þótti ekki auka líkur á því að fall­ist yrði á fyrri umsókn hans skv. 1. mgr. 35. gr. laga um útlend­inga. 

Í apríl kærði Oscar ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar til kæru­nefndar og gerði grein fyrir því að hann hefði búið við lík­am­legt og and­legt ofbeldi af hálfu föður síns og ekki notið verndar móður sinnar en hún og faðir hans eru skilin. Oscar hafi þurft að flýja frá föður sínum og fékk skjól hjá Svavari Jóhanns­syni og Sonju Magn­ús­dóttur. 

Sonja Magn­ús­dóttir og Svavar Jóhanns­sonFóst­ur­for­eldrar Oscars voru við­stödd mót­mælin

Í úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála, sem kom út 22. maí, er greint frá því að Oscar eigi fjöl­skyldu og for­sjárað­ila í Kólumbíu en þar að auki séu barna­vernd­ar­yf­ir­völd þar í landi sem munu veita honum við­tökur við komu til lands­ins. Kæru­nefnd stað­festi nið­ur­stöðu Útlend­inga­stofn­unar er varða 1. mgr. 35. gr. laga um útlend­inga. 

„Það skortir mennsku í þessar ákvarð­anir og þau skýla sér á bak­við lögin, en lögin heim­ila að veita honum dval­ar­leyfi til dæmis af mann­úð­ar­á­stæðum."
Helga Vala Helga­dóttir
Lögmaður Oscars

Helga Vala segir það efn­is­lega rangt að Oscar eigi for­eldra í Kólumbíu þar sem þau geti ekki ann­ast hann og hann sé því fylgd­ar­laust barn. Þar að auki segir hún úrskurð­inn rýra frá­sögn Oscars um að hann hafi orðið fyrir ofbeldi en nefndin fékk í hendur grein­ar­gerð Barna­verndar Suð­ur­nesja í stað end­ur­rits af skýrslu hennar. Þetta hafi verið gert til að koma í veg fyrir að smá­at­riði yrðu gerð opin­ber. Helga Vala seg­ist hafa talið að grein­ar­gerðin myndi telj­ast full­nægj­andi gögn þar sem skýrt kemur fram í grein­ar­gerð­inni að mælt sé gegn því að Oscari sé brott­vísað.

Sonja Magn­ús­dóttirFóst­ur­móðir Oscars á mót­mæl­unum

„Gaslýsingar” Útlendingastofnunar

Útlend­inga­stofnun sendi fyrr í dag frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins. Spurð út í við­brögð sín vegna hennar segir Helga Vala: „Ég leyfi mér að nota orðið gas­lýs­ing í þessu, tíma­setn­ing þess­arar yfir­lýs­ingar Útlend­inga­stofn­unar er engin til­viljun þau voru auð­vitað að reyna að koma í veg fyrir að hér yrði mann­fjöldi – þeim tókst þó ekki ætl­un­ar­verk sitt.”

Í yfir­lýs­ing­unni er því haldið fram að ekki sé gott að skapa vænt­ingar sem ekki séð hægt að standa við sem Helga Vala gagn­rýnir: „Þau leyfa sér að vega að Sonju og Svavari fyrir að búa til of miklar vænt­ingar hjá drengnum, að þau hafi í raun valdið honum meiri skaða heldur en ákvörðun stjórn­valda á Íslandi. Þetta eru auð­vitað ótrú­lega ómann­eskju­legt og bara lélegt finnst mér af þeim að fara fram með þessum hætti og ég skil ekki alveg til­gang­inn í því.” 

Næstu skref

Nú er verið að bera ákvörðun kæru­nefndar undir dóm­stóla en Helga Vala segir að þau ætli að: „treysta því að það sé aðeins meiri mennska þar.”

Það þurfi þó einnig að biðla til kæru­nefndar útlend­inga­mála að fresta rétt­ar­á­hrifum svo að Oscar fái að vera á land­inu á meðan ákvörð­unin er borin undir dóm­stóla en til stendur að senda Oscar úr landi í næstu viku þannig að tím­inn er naumur.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Þvílík mannvonska gegn þessum dreng og fósturforeldrum hans !
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár