Ég fer í fríið
Eftir vægast sagt hörmulegt sumar, ef sumar má kalla, var ákveðið að við fjölskyldan skyldum panta ferð í sólina. Kvíðinn yfir næstu veðurfréttum var orðinn óbærilegur og myndir frá vinum okkar í hitabylgju í Skandinavíu vöktu upp alltof mikla afbrýðisemi, það var því miður ekki lengur hægt að samgleðjast sólbrúnum og brosandi gerpunum. Ferðin var keypt og við tóku andvökunætur...