
Umboðsmaður segir stjórnvöld treg til að fylgja stjórnsýslureglum við ráðstöfun ríkiseigna
Umfangsmikil sala ríkiseigna fer fram þessa dagana á vegum fjármálaráðuneytisins. Bjarni Benediktsson vildi lögfesta undanþágu frá stjórnsýslulögum við sölu stöðugleikaeigna en þingið kom í veg fyrir það. Umboðsmaður bendir á það í ársskýrslu sinni að við ráðstöfun opinberra eigna gæti meiri tregðu til að fylgja stjórnsýslureglum en gengur og gerist á öðrum sviðum stjórnsýslunnar.









































