Velferð á kostnað láglaunakvenna
Láglaunakonur búa við raunveruleika sem er mjög ólíkur þeim sem flestir aðrir hópar samfélagsins búa við. Þær sinna krefjandi störfum sem snerta okkur öll, börnin okkar, foreldra, ættingja og vini. Þetta eru konur sem samfélagið gæti ekki verið án og störf sem myndu setja atvinnulífið á hliðina væri þeim ekki sinnt.