
Þurftu að kalla fólk niður af fjalli til að færa bílana
Daníel Freyr Jónsson, svæðissérfræðingur í náttúruverndarteymi, segir stanslausar teppur hafa verið á bílastæðum við Landmannalaugar áður en farið var að innheimta bílastæðagjöld á álagstímum í sumar. Kalla hafi þurft bílstjóra niður af fjöllum til að færa bílana til að greiða leið fyrir rútum. Nýja fyrirkomulagið hafi hlotið góð viðbrögð hjá gestum.































