
Segja leigusala nýta sér neyð flóttafólks til að okra á Bifröst
Íbúar á Bifröst segja fyrirtæki sem leigir út gamla stúdentagarða nýta sér neyð þeirra sem þar búa til að standa í óhóflegum verðhækkunum. Meirihluti íbúanna eru flóttamenn, flestir frá Úkraínu. „Við höfum engan annan möguleika. Við getum ekki bara farið.“ Leigusalinn segir við Heimildina að leiguverðið þyki afar hagstætt.




























