
Margeir gerði leyniupptöku af lögreglukonunni sem hann áreitti
Háttsettur lögregluþjónn, sem áreitti lögreglukonu kynferðislega og sýndi henni ofbeldisfulla hegðun, hljóðritaði án hennar vitundar samtal þeirra og reyndi að nýta það sem kom fram á upptökunni þegar sálfræðistofa var fengin til að leggja mat á samskipti þeirra. Lögreglumaðurinn tók við nýrri stöðu þegar hann sneri aftur úr leyfi.





























































