Fyrir vinnustaði og stofnanir

Vinnustaðaáskrift að Heimildinni

Ein áskrift fyrir allan vinnustaðinn: aðgangur að öllu efni Heimildarinnar fyrir starfsfólkið, einn reikningur, og þú bætir fólki við og tekur af sjálf/ur.

  • Hver starfsmaður fær aðgang að öllu efni Heimildarinnar, á vefnum og í appinu.
  • Einn reikningur á kennitölu vinnustaðarins, mánaðarlega eða árlega.
  • Þú bætir fólki við og tekur af á Minni síðu, eða deilir hlekk sem það gengur inn um sjálft.
  • Blaðið á vinnustaðinn, eins mörg eintök og þarf.
  • Magnafsláttur: 15% frá 3 sætum, 25% frá 10 sætum og 40% frá 20 sætum.

Veldu áskriftina

10.175 kr. á mánuði

3 sæti · 15% magnafsláttur · 3.392 kr. á mann á mánuði

Greiðsluseðill eða kort · Hægt að segja upp hvenær sem er

Algengar spurningar

Hvernig bæti ég fólki við?

Á síðu vinnustaðarins á Minni síðu skrifarðu netföng, eitt eða mörg í einu, og hver fær tölvupóst með leið inn. Þú getur líka deilt hlekk sem fólk gengur inn um sjálft, og ef þú vilt aðeins fyrir netföng á léni vinnustaðarins.

Hvað gerist þegar einhver hættir?

Þú tekur sætið af viðkomandi og það losnar fyrir næsta. Aðgangurinn lokast strax.

Get ég fjölgað eða fækkað sætum?

Já, hvenær sem er á Minni síðu. Nýr fjöldi gildir frá næstu greiðslu. Fyrir fleiri en 30 sæti höfum við samband.

Hvernig er greitt?

Með kröfu á kennitölu vinnustaðarins í heimabanka, og seðilgjald, 190 kr., bætist við hverja kröfu, eða með greiðslukorti. Greitt er mánaðarlega eða árlega, með 10% afslætti.

Hvernig virka blöðin?

Þú velur hve mörg eintök koma á vinnustaðinn, óháð fjölda sæta á vefnum. Hverju blaði fylgir sæti, eins og prentáskrift fylgir vefurinn.

Hvernig segi ég upp?

Á Minni síðu, hvenær sem er. Áskriftin gildir út greitt tímabil og síðan lokast sætin. Spurningar sendist á askrift@heimildin.is.