„Við erum ennþá að fremja efnahagsbrot og við erum ennþá að rannsaka slík brot. Í dag er það þó þannig að við erum með einingu eða starfsemi sem ræður við að rannsaka flókin efnahagsmál og hefur bæði mannskap og búnað til þess.“
[links]Þetta segir Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari og fyrrverandi sérstakur saksóknari, aðspurður um hvort að Íslendingar séu enn að fremja efnahagsbrot, eða hvort að embætti hans sé enn að takast á við brot af því tagi sem áttu sér stað í aðdraganda bankahrunsins.
Þetta kom fram í viðtali Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, við Ólaf í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut á miðvikudag þar sem þeir ræddu hrunið og afleiðingar þess í tilefni af því að áratugur er liðinn frá atburðunum afdrifaríku nú um stundir. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
[adspot]Ólafur sagði að framganga íslenskra rannsóknaraðila hafi vakið umtalsverða athygli erlendis, en Ísland tók með allt öðrum hætti á grunsemdum um lögbrot í starfsemi bankanna en nokkuð annað land í heiminum. „Við sjáum það líka þegar við sækjum fundi erlendis að við erum nokkuð góð í því sem við erum að gera. Við höfum þó nokkuð til málanna að leggja varðandi þessi atriði í dag,“ segir Ólafur.
Málin sem embætti hans er að takast á í dag eru þó annars eðlis en þau sem það rannsakaði fyrstu árin eftir að embætti sérstaks saksóknara var sett á fót. Umfang þeirra sé mun minna en „trendin“ séu enn þau sömu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




























Athugasemdir