Tóku völdin en misstu áhrifin

Tíu ár­um eft­ir að Bret­ar kusu að ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu greiða Ís­lend­ing­ar at­kvæði um hvort hefja eigi að­ild­ar­við­ræð­ur við sam­band­ið að nýju. Hvaða áhrif hafði út­gang­an á breskt sam­fé­lag og hvaða lex­íu geta Ís­lend­ing­ar lært af henni?

Tóku völdin en misstu áhrifin

Föstudagsmorguninn 24. júní árið 2016 vöknuðu gestir tónlistarhátíðarinnar Glastonbury í miðju forarsvaði. Skipuleggjandi hátíðarinnar kvaðst aldrei hafa upplifað aðra eins rigningartíð.

Ekki leið á löngu uns símaskjáir tóku að lýsast upp í tjöldum með fréttum af því sem margir sáu sem óeiginlegt þrumuský. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu, sem hafði farið fram daginn áður, lá fyrir. Bretar höfðu kosið að ganga úr Evrópusambandinu.

Ekki aðeins himnarnir grétu á Glastonbury sumarið 2016 heldur gestirnir líka; samkvæmt könnun The Times höfðu 83% hátíðargesta kosið gegn útgöngunni.

Þegar Chris Martin, söngvari Coldplay, steig á svið þakkaði hann gestum fyrir að umbera úrhellið, drulluna og hrun landsins.

Fimm hundruð kílómetrum norðar í Sunderland kvað við annan tón. Tölur frá hafnarborginni voru fyrsta vísbending um öruggan sigur útgöngusinna. „Hlutirnir verða að fara að breytast,“ sagði Jim Oliver, fyrrverandi málari, við blaðamann Guardian. Hann kvaðst binda vonir við að framtíðin væri björt, en 61% íbúa Sunderland kaus …

Kjósa
92
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
ViðtalHorft til Evrópu

Líf­ið á Spáni fyr­ir og eft­ir Evr­ópu­sam­band­ið

Fjór­um ár­um áð­ur en Spánn gekk í Evr­ópu­sam­band­ið flutti Hólm­fríð­ur Matth­ías­dótt­ir, út­gáfu­stjóri For­lags­ins, til Barcelona. Hún hef­ur upp­lif­að mikl­ar breyt­ing­ar þar og seg­ir Evr­ópu­sam­band­ið hafa dælt styrkj­um til Spán­ar og það til ým­issa mála, eins og til end­ur­bóta á sam­göng­um og land­bún­aði jafnt sem styrkj­um til menn­ing­ar­mála. Þá hafi katalónsk­an hlot­ið með­byr.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár