Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins

Lög­mað­ur­inn Guð­rún Björg Birg­is­dótt­ir starf­aði sem ráðs­mað­ur fólks sem svipt hafði ver­ið fjár­ræði og er sök­uð um að hafa nýtt sér stöðu sína til að fremja auðg­un­ar­brot. Ólaf­ur Hauks­son hér­aðssak­sókn­ari seg­ir meint­an fjár­drátt henn­ar vera til með­ferð­ar hjá embætt­inu og vel­ferð­ar­sviði Reykja­vík­ur­borg­ar var gert við­vart þar sem hún sá um fjár­mál minnst tveggja ein­stak­linga.

Fleiri tilvik og háar upphæðir í fjárdráttarmáli lögmannsins
Ólafur Hauksson Héraðssaksóknari staðfestir að mál Guðrúnar sé til meðferðar hjá embættinu. Mynd: Kristinn Magnússon / Stundin

Grunur leikur á um að Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hafi ekki aðeins millifært fé úr dánarbúi konu á eigin reikning heldur einnig nýtt sér stöðu sína sem ráðsmaður einstaklinga sem sviptir höfðu verið fjárræði til að draga sér fé.

Guðrún fór með fjármál minnst tveggja skjólstæðinga Reykjavíkurborgar sem velferðarsvið segir hafa upplifað brot á trausti við fregnir um rannsókn málsins.

Eins og Heimildin greindi frá í gær hefur Guðrún, sem stofnaði og rak lögmannsstofuna Logia, verið kærð fyrir fjárdrátt upp á tæpar 13 milljónir króna úr dánarbúi konu sem hún var skiptastjóri í. Hún hefur einnig verið tilkynnt af skiptastjóra til héraðssaksóknara vegna rökstudds gruns um auðgunarbrot í tengslum við rekstur Logia sem nú er til gjaldþrotaskipta.

Ólafur Hauksson héraðssaksóknari staðfestir í samskiptum við Heimildina að kæra hafi borist vegna máls Guðrúnar. „Málið er hér til  meðferðar,“ svaraði hann í tölvupósti. „Nánari …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HÁMARKAÐU VIÐSKIPTAMÖGULEIKA ÞÍNA MEÐ ÓKEYPIS MERKJUM OG MARKAÐSGREININGU. HAFIÐ SAMBAND VIÐ ALFRED Á TELEGRAM (Alfredthoms) FYRIR SÉRFRÆÐINGA AÐSTOÐ.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
2
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
3
Stjórnmál

Sam­fylk­ing­in klofn­ar vegna brott­far­ar­stöðv­ar: Hvað ann­að átti að gera?

Þing­nefnd­in sem fjall­aði um ný­sam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ing­ar og hug­mynd­ir að minnst tíu öðr­um leið­um sem hægt væri að fara en að setja börn í lok­að úr­ræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ing­in virð­ist klof­in í af­stöðu sinni til máls­ins þó að þingl­ið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár